Golf18.is


Sjá allt um Golf18 Open sem fram fer í golfhermi í Veggsport

               * St. Andrews í janúar
               * Pebble Beach í febrúar
               * Druid Glen í mars
                                       ...Sjá hér til hægri


ABC mótaröðin sumarið 2010......
...... verður á sínum stað sumarið 2010. Fyrsta árið gekk vel og skilaði átakið "Golf til góðverka" nægum peningum til að greiða fulla framfærslu fyrir 6 börn í ár. (Sjá "Okkar ABC börn" hægramegin á síðunni).
Nokkrar breytingar verða á ABC mótaröðinni sumarið 2010. Leikið verður áfram í fjórum flokkum karla, en nýtt er að nú verður einnig leikið í tveimur flokkum kvenna og einnig í unglingaflokkum stráka og stúlkna. 
Leiknar verða fjórar umferðir á fjórum völlum, þar sem þrjár bestu umferðirnar telja. Niðurskurður verður síðan fyrir síðustu umferðina þar sem ca. efstu 20% í hverjum flokki komast í lokaumferðina.

Sjá "ABC mótaröðin 2010".

ABC bikarinn 2010
Nýtt í ABC bikarnum er að sumarið 2010 (og framvegis) er að keppt verður bæði í karla- og kvennaflokki. Semsagt einn opinn flokkur karla og einn opinn flokkur kvenna.

Fyrsta umferð verður punktakeppni.
Önnur umferð verður höggleikur með forgjöf.
Allar umferðir eftir það verða holukeppni með forgjöf.

ABC bikarinn og ABC mótaröðin eru einstaklingskeppnir fyrir alla kylfinga 14 ára og eldri, karla jafnt sem konur.

ABC mótaröðin er hugsuð sem stigamótaröð fyrir alla þá sem ekki eru á "Íslensku mótaröðinni". 

Leikmenn á ABC mótaröðinni skrá sjálfir skorið inná golf.is til forgjafar. Þetta þarf að gera að ósk GSÍ vegna þess að of langur tími líður frá því að keppt er í ABC mótaröðinni þangað til það kemur inn til forgjafar.

Svar við algengri spurningu um ABC mótaröðina:
Það þarf að skrá sig og greiða í hverja umferð á ABC mótaröðinni á nákvæmlega sama máta eins og í fyrstu umferðina.

Ath. að ABC mótaröðin er öllum opin sem hafa 5,1 eða hærri forgjöf hjá körlum og 10,1 og hærri hjá konum.

Ef ykkur vantar einhvern til að leika með í ABC mótaröðinni skoðið þá "Skilaboðaskjóðuna" hér hægramegin á síðunni.
Sendið póst á
hans@golf18.is
ef þið þurfið að koma á framfæri skilaboðum.

  
Allt um mótin á hnöppunum hér til hægri á síðunni.

Átakið "Golf til góðverka" 

Hvað er betra en að spila golf í skemmtilegu golfmóti í góðu veðri og í leiðinni hjálpa þeim hjá ABC barnahjálp að bjarga börnum víða í heiminum? 
500 kr. af öllum þáttökugjöldum renna til þeirra, þannig að hér er gott tækifæri að gera eitthvað sem skiptir verulegu máli. 

Samhliða mótunum mun starfshópur undir forystu Loga Bergmann safna peningum frá fyrirtækjum og /eða einstaklingum og þannig gefa öllum kost á að vera með í átakinu.
Þannig ættum við að geta safnað verulegum fjárhæðum. Fyrir peninginn gerumst við styrktaraðilar að eins mörgum börnum hjá ABC barnahjálp og við getum í 12 mánuði frá og með 1. október 2009. 

 
              Kynnið ykkur starfsemi ABC barnahjálpar hér.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vafraðu um