Nú í sumar verður "ABC mótaröðin" í golfi haldin í fyrsta skipti.
Keppt verður í 1. fl. karla og opnum flokki í 2. fl. 3. fl. og 4. fl.
Allir kylfingar 14 ára (f. 95) og eldri, sem hafa forgjöf 5,1 (hjá körlum) og 10,1 (hjá konum) eða hærri eru velkomnir til leiks! Leikmenn sem ekki hafa löglega forgjöf geta ekki unnið til verðlauna.
Keppt verður um eftirfarandi titla:
"Stigameistari ABC 2009 í 1. flokki"
"Stigameistari ABC 2009 í 2. flokki"
"Stigameistari ABC 2009 í 3. flokki"
"Stigameistari ABC 2009 í 4. flokki"
Leikfyrirkomulag er höggleikur án forgjafar.
Þáttökugjald er 3.000.- Krónur í hverja umferð.
Skráning er hér til hægri á síðunni.
Það þarf að skrá sig til leiks og greiða fyrir hverja umferð.
1. umferð
Fyrsta umferð var á Gufudalsvelli í Hveragerði og er lokið.

Fáni Golf18.is var uppi á Gufudalsvelli meðan keppni stóð yfir þar í maí.
ATH. ABC mótaröðin er skráð inná golf.is undir merkjum GHG á dagsetningunni 31. maí. Þar mun koma hverjir taka þátt í umferðinni og að henni lokinni verður hægt að sjá skor og sætaskipan keppenda. Skor verða ekki birt fyrr en allir hafa lokið leik. Stigalistinn verður svo birtur hér á Golf18.is.
2. umferð
Annarri umferð er nú lokið á Selsvelli á Flúðum, GF. Frábær völlur.
Leikdagar voru 1. til 30 júní.
ATH! Þú þarft ekki að hafa leikið í fyrstu umferð til að geta verið með nú!
3. umferð
Þriðja umferð var á Setbergsvelli hjá GO og er lokið. Skemmtilegur og krefjandi par 74 völlur. Leikdagar 1. til 31. júlí.
Tilboðsverð á æfingahringjum (18 holur) til þeirra sem hafa skráð sig í umferðina og greitt þáttökugjaldið er aðeins 2.000 kr.
ATH! Þú þarft ekki að hafa leikið í fyrstu umferð til að geta verið með nú!

Fáni Golf18.is var uppi í júlí á Setbergsvelli til merkis um að þriðja umferð væri þar.
4. umferð
Keppni er lokið í fjórðu umferð í ABC mótaröðinni sem leikin var á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Þar sem ekki enn hefur verið opnað á 18 holu völlin hjá þeim verður leikið þar 2 x 9 holur. Mjög skemmtilegur völlur.
Leikdagar 1. til 31. ágúst.
ATH! Þú þarft ekki að hafa leikið í fyrri umferðum til að geta verið með nú!
Þegar leikið er í alvöru höggleik er skynsamlegt að fara einn eða fleiri æfingahringi og kynnast vellinum og setja upp leikplan.

Fáni ABC mótaraðarinnar er
kominn upp í Sandgerði
5. umferð
Síðasta umferðin verður svo leikin á Urriðavelli hjá GO. Einn af toppvöllunum á Íslandi. Sjá "Lokaumferðin".
Þeir sem eru í sæti 21 og ofar leika 1. til 11. september.
Þeir sem eru á topp 20 í hverjum flokki leika lokahringin 12. september.
Til að skor teljist gilt skulu tveir eða fleiri þáttakendur í stigamótinu spila í sama ráshóp þann hring sem telur.
Leikmönnum er heimilt að spila æfingahringi að vild á eigin kostnað, þó ekki sama dag og spilað er í keppninni. Klúbbarnir verða með tilboð á æfingahringum fyrir þáttakendur í ABC mótaröðinni. Tilboð hjá GO er 3.800.- æfingahringurinn.
Flokkaskipting fer eftir forgjöf og skal vera svohljóðandi:
Karlar 1. flokkur grunnforgjöf 5,1 til 10,0
Ka + kvk 2. flokkur grunnforgjöf 10,1 til 15.4
Ka + kvk 3. flokkur grunnforgjöf 15.5 til 21,0
Ka + kvk 4. flokkur grunnforgjöf 21.1 og hærra.
Karlar spila á gulum teigum, en konur á rauðum.
Þegar þú skráir þig inn fer leikmaður í flokk eftir forgjöf og verður í þeim flokki til enda keppni 2009, þó svo að leikmaður hækki eða lækki lítillega í forgjöf.
Nokkrir kostir mótaraðarinnar:
* Þú velur hvaða dag þú spilar innan tímamarka.
* Þú spilar alltaf í góðu veðri.
* Keppnin truflar ekki önnur mót sem þú tekur þátt í.
* Keppnin truflar ekki mótahald hjá klúbbunum.
Kynnið ykkur reglur ABC mótaraðarinnar hér til hægri undir "Reglur"
Efstu 20 í hverjum flokki er stillt upp til keppni einhvern daginn á tímabilinu 14. til 17. september á Urriðavelli í Garðabæ.
19. september verður lokahóf og verðlaunaafhending.
Þannig verður leikið hjá efstu fjórum í hverjum flokki.
Sæti 17 til 20 í 4.flokki
Sæti 17 til 20 í 3.flokki
Sæti 17 til 20 í 2.flokki
Sæti 17 til 20 í 1.flokki
Sæti 13 til 16 í 4. flokki
Sæti 13 til 16 í 3. flokki
Sæti 13 til 16 í 2. flokki
Sæti 13 til 16 í 1. flokki
Sæti 9 til 12 í 4. flokki
Sæti 9 til 12 í 3. flokki
Sæti 9 til 12 í 2. flokki
Sæti 9 til 12 í 1. flokki
Sæti 5 til 8 í 4. flokki
Sæti 5 til 8 í 3. flokki
Sæti 5 til 8 í 2. flokki
Sæti 5 til 8 í 1. flokki
Og síðast koma Tigerarnir:
Sæti 1 til 4 í 4. flokki
Sæti 1 til 4 í 3. flokki
Sæti 1 til 4 í 2. flokki
Sæti 1 til 4 í 1. flokki
Dagsetning og rástímar verða kynntir þegar nær dregur.