Golf18.is

ABC bikarinn 2009


Nú í sumar verður haldin bikarkeppni í golfi "ABC bikarinn" í fyrsta skipti. 
 
Keppt er í einum opnum flokki. 
 

Sigurvegari í keppninni hlýtur titilinn "ABC bikarmeistari í golfi 2009"   

Keppt er með útsláttarfyrirkomulagi. Þeir tveir leikmenn sem dregnir eru saman til að spila á móti hvor öðrum, ákveða sjálfir stund og stað til að leika innan þeirra tímamarka sem umferðinni er gefin.

Leikmenn geta valið að spila á hvaða löglegum golfvelli sem er á Íslandi.  
 
Þáttökugjald er 2.500.- Krónur í hverja umferð.   
 


Örn Ævar Hjartarson GS, Ásta Birna Magnúsdóttir GK og Sigurpáll Sveinsson
GKJ eru á meðal þáttakenda í ABC bikarnum. Einnig Ragnhildur Sigurðardóttir
GR og Eygló Myrra Óskarsdóttir GO. Ljósm. Már Sveinbjörnsson


Einn pottur
- einn sigurvegari! 
 

Tvær fyrstu umferðirnar eru punktakeppni,  tvær umferðir þar á eftir er höggleikur með forgjöf, en allar umferðir eftir það er holukeppni með forgjöf. 

Hámarksforgjöf hjá körlum er 24 og hjá konum 28. Leikmaður skal hafa löglega forgjöf.
 

Kostir keppnisfyrirkomulagsins eru: 

* Frjálst val um stund og stað.

* Þú spilar alltaf í góðu veðri.

* Keppnin truflar ekki önnur mót sem þú tekur þátt í.

* Keppnin truflar ekki mótahald klúbbana.

* Allir 14 ára og eldri eru velkomnir að vera með . 
 
Ekki er hægt að bæta við keppendum nú eftir að búið er að draga í fyrstu umferðina. 
 
Kynnið ykkur hvernig leika skal hér til hægri undir "Svona leikum við" og "Reglur". 

Bestu kveðjur

Keppnisstjóri

Vafraðu um