|
Golf18.is |
|
Svona leikum við á ABC mótaröðinniÞegar þú hefur skráð þig til leiks í mótaröðinni þá er það sú forgjöf sem þú ert með þá, sem gildir allt sumarið. Leikmönnum er raðað í flokk við fyrstu skráningu og verða í þeim flokki allt sumarið þó að forgjöf þeirra lækki eða hækki yfir eða undir mörk flokka. Þegar leikmaður sér inná golf.is að skráning hans er komin inn, þá getur hann farið og leikið hvenær sem er innan tímamarka sem sett hafa verið. Leikmaður má alls ekki fara einn til leiks í mótinu. Minnst einn annar keppandi á ABC mótaröðinni skal vera með honum í ráshóp, leikmenn þurfa ekki að vera í sama flokki. Leikmenn skulu skrá skor hvors annars og telja höggafjölda hjá þeim leikmanni sem þeir eru að skrá. Mjög mikilvægt er að leikmenn gefi sig fram í afgreiðslu ÁÐUR en leikið er í mótinu og fá þeir þá þar til gert skorkort sérmerkt fyrir þetta mót. Gott er að skrifa greinilega kennitölu og aðrar upplýsingar svo og skor á holur og heildarskor. Leikmenn fylla samviskusamlega á kortið með prentstöfum og skiptast síðan á þeim og skrá skor hvors annars eins og gengur. Ritari í golfskála merkir við hverjir eru mættir til leiks í mótinu með dagsetningu og rástíma. Það má "ALLS EKKI" spila, EÐA REYNA AÐ SPILA tvisvar í sömu umferð á mótaröðinni. Að leik loknum þá skrifa leikmaður og ritari undir skorkort eins og í öllum öðrum mótum og setja í þar til gerðan kassa í klúbbhúsinu. Stig verða birt er allir hafa lokið leik. |
Vafraðu um |