Golf18.is

Golf til góðverka

Golf18.is hefur gert samstarfssamning við ABC barnahjálp.
Samningurinn felur í sér að tvö golfmót sem Golf18 stendur fyrir í sumar heita "ABC bikarinn" og "ABC mótaröðin". ABC barnahjálp fær 500 krónur af þáttökugjaldi allra keppenda sem taka þátt í mótunum.


Logi Bergmann Eiðsson sendiherra
ABC í Kenýa er golfari og stýrir
átakinu "Golf til góðverka"


Samhliða verður hrint af stað átaki undir yfirskriftinni "Golf til góðverka" þar sem peningum verður safnað frá fyrirtækjum og einstaklingum og þannig leyfa öllum eigendum, framkvæmdastjórum og öðrum stjórnendum fyrirtækja, sem eru kylfingar eða hafa áhuga á golf íþróttinni, að vera með okkur í þessu átaki.


Sr. Hjálmar Jónsson sóknarprestur
Dómkirkjunnar er golfari og er verndari
átaksins "Golf til góðverka"


Kynnið ykkur starfsemi ABC barnahjálpar hér.

Bæði mótin heita ABC eins og fyrr sagði, vegna þess að nú ætlum við í sameiningu, íslenskir kylfingar, að taka höndum saman og láta gott af okkur leiða. Hvað er betra en að spila í skemmtilegu golfmóti í góðu veðri og í leiðinni hjálpa samtökum eins og ABC barnahjálp að bjarga börnum víða í heiminum?

Stefnt er hátt og vonandi fjölmenna kylfingar í mótin og þannig safna verulegum fjárhæðum í þetta verðuga verkefni.

Fyrir peninginn, sem safnast, gerumst við styrktaraðilar að eins mörgum börnum og við getum í 12 mánuði frá og með 1. október 2009. Eftir því fleiri sem taka þátt, því fleiri börn verða "Börnin okkar".

ATH: Hér er ekki verið að tjalda til einnar nætur, því ætlunin er að halda þessi mót árlega í samstarfi við ABC barnahjálp.

Hér er því einstakt tækifæri til að vera þáttakandi í skemmtilegum golfmótum, sem líka skiptir máli fyrir börn útí heimi sem eru bágstödd. 

Vertu með og stefnum á að styðja sem flest börn til mannsæmandi lífs og tækifæri til menntunar.

Fyrirtæki eða einstaklingar sem hafa áhuga að vera með okkur í átakinu geta haft samband við:

 

Guðrún Margrét Pálsdóttir  gmp@abc.is  formaður ABC barnahjálp
Margrét Blöndal                 margret@abc.is  skrifstofustjóri ABC barnahjálp

 

 

 

 Söfnunarreikningur "Golf til góðverka"

Banki 344-13- 41700
Kt. 690688-1589 

 

Vafraðu um