|
Golf18.is |
|
Svona leikum við í bikarnumÞegar dregið hefur verið í bikarnum þá kemur í ljós hver er mótherji þinn. Þú færð uppgefið nafn, kennitölu, golfklúbb sem hann er í, forgjöfina hans, símanúmer og netfang. Það er síðan alfarið á ábyrgð keppenda að koma sér saman um keppnisstað og stund og að leika innan tímamarka (dagsetninga) sem upp eru gefin. Best er því að hafa samband sem fyrst við mótherja sinn og athuga hvernig staðan er hjá honum og hvenær henti best að spila fyrir báða. Þá er bara að fylgjast með veðurspánni og velja sér góðan dag. Þegar komið er fram í holukeppnina er lykilatriði að vita hver vallarforgjöfin er. Leikmenn verða að mæta tímanlega til leiks! Gott er þá að hafa með sér forgjafakortið útprentað með dagsetningu á frá sama degi og leikið er eða frá kvöldinu áður. Að leik loknum er gott að setja inn skor beggja inná golf.is og fá þá staðfest hvor hefur fleiri punkta.Ef ljóst er að annar leikmaður er að spila mjög vel og hinn mjög illa þá er óþarfi að fara nánar útí það, því við þurfum einungis að vita hvor vann, við þurfum ekki að vita skorið að neinu öðru leyti. Það er síðan undir leikmönnum komið hvort þeir visti skorið til forgjafar, en mælt er með því að svo sé gert. Að endingu skal tilkynna hvor vann með því að senda tölvupóst til golf18@golf18.is. |
Vafraðu um |