|
Golf18.is |
|
Fjögurra manna úrslitNú hefur verið dregið í fjögurra manna úrslit í ABC bikarnum 2009. Leiktími er til og með miðvikudagsins 9. september. Hafðu strax samband við andstæðing þinn. ATH. Umferðin er holukeppni með forgjöf. Leikur 1: Guðjón I. Gíslason GO 12,6 Baldur Baldursson GÞH 4,3 Guðjón I. Gíslason GO vann Leikur 2: Ragnhildur Sigurðardóttir GR 0,0 Sigurpáll Sveinsson GKJ -1,0 Sigurpáll Sveinsson GKJ vann Úrslitaleikurinn í ABC bikarnum Sigurpáll Sveinsson GKJ fyrsti ABC bikarmeistarinn
Sigurpáll Sveinsson GKJ og Guðjón Gíslason GO áttust við í úrslitaleiknum í ABC bikarnum á Korpúlfsstaðavelli í dag. Skemmst er frá því að segja að Sigurpáll, sem er búinn að vera sjóðheitur seinnipart sumars og ekki spilað hring yfir pari vallar síðan daginn áður en hann jafnaði vallarmetið á Grafarholtsvelli á lokadeginum á landsmótinu, sigraði viðureignina í dag 3/2. Sigurpáll sló varla feilhögg á hringnum og var til að mynda ekki langt frá að fá erni bæði á fyrstu og annari braut, en hann var á flöt í tveimur höggum á þeim báðum. Hann lék hringinn á 68 höggum, fékk 6 fugla og 2 skolla.
Guðjón Gíslason átti smá von er hann sigraði þrettándu holuna með góðu pari og minnkaði munin í tvær holur og síðan fell sú fjórtánda. En góður fugl hjá Sigurpáli á fimmtándu, eftir að hann var í vandræðum eftir teighöggið, gerði útslagið og Guðjón þá þrjár undir og þrjár eftir. Guðjón fékk skolla á þeirri næstu og Sigurpáll par og því fell holan og Sigurpáll því búinn að sigra leikinn 3/2.
Sigurpáll er vel að titlinum komin því hann hefur leikið fantagott golf í keppninni og meðal annars sett vallarmet 65 högg á Grafarholtsvelli, er hann lék á móti Ástu Birnu Magnúsdóttur GK, en það fékkst ekki viðurkennt af einhverjum ástæðum.
Semsagt ABC bikarmeistari 2009 er Sigurpáll Sveinsson GKJ. |
Vafraðu um |