|
Golf18.is |
|
ABC mótaröðin 2010Ætlun mín í upphafi var að hafa ABC mótaröðina alvöru "massíva" golfkeppni án forgjafar og engin sjéns gefin neinsstaðar á að misstíga sig. Nú er mér ljóst að það þarf að fá einn sjéns á árinu og því hef ég ákveðið eftirfarandi breytingar á ABC mótaröðinni: A: Fyrst verða spilaðar fjórar umferðir og þrjár bestu af þeim telja. Leikinn er höggleikur án forgjafar eins og áður og fá leikmenn stig eftir hvaða sætum þeir ná eins og í fyrra. 4. flokkur ka. og 2. flokkur kvenna svo og unglingaflokkarnir leika höggleik með forgjöf. Niðurskurður verður í fimmtu umferðina og verður miðað við ca. topp 25 til 30%. Þeir sem ná ekki gegnum niðurskurðin fá ekki leikrétt í fimmtu umferð. Þannig að nú er það markmiðið að komast í síðustu umferðina. B: Á árinu 2010 verður tekin upp keppni í kvennaflokki og unglingaflokkum. Flokkar verða eftirfarandi: Karlaflokkar verða fjórir: 1. flokkur ka. grunnforgjöf 5,1 til 10,0 2. flokkur ka. grunnforgjöf 10,1 til 15.4 3. flokkur ka. grunnforgjöf 15.5 til 21,0 4. flokkur ka. grunnforgjöf 21.1 og hærra. Höggleikur með forgjöf. Kvennaflokkar verða tveir. 1. flokkur kv. grunnforgjöf 10,1 til 23,5 2. flokkur kv. grunnforgjöf 23,6 og uppúr. Höggleikur með forgjöf. Unglingaflokkur stráka eru fyrir 17 ára og yngri og er miðað við almanaksár. (fædd 1992). Leikinn er höggleikur með forgjöf. 14 ára og yngri leika af rauðum teigum. Strákar með hærri forgjöf en 28 leika á rauðum teigum. Aðrir leika af gulum teigum. Unglingaflokkur stúlkna er fyrir 17 ára og yngri og er miðað við almanaksár. (fædd 1992). Leikinn er höggleikur með forgjöf. Leikið er af rauðum teigum. Ný síða er væntanleg öðrumegin við áramótin og verður fjallað nánar um þetta þar. |
Vafraðu um |