|
Golf18.is |
|
Golf18 OpenSkorkortin þrjú sem vantaði um daginn komu í leitirnar og hér höfum við þá lokastöðuna í mótinu. Öll úrslit hér á Golf18 Open 2010. Stigamótaröð leikin í þremur umferðum á þremur völlum á þremur mánuðum. Keppnin fer fram í golfhermi í Veggsport, Stórhöfða 17 við Gullinbrú. Leikinn er höggleikur með forgjöf.
Veitt eru 15.000 stig til efstu 60 keppenda í hverri umferð. Tvær bestu umferðir telja.
Panta þarf rástíma hjá Veggsport í síma 577 5555. Leika má hvenær sem er þann tíma sem opið er og tími er laus.
Leikið er í karla- og kvennaflokki. Verðlaun eru hlutfall (500 kr.) af hverju þátttökugjaldi í hvorum flokki fyrir sig. Einungis kylfingar með löglega forgjöf geta unnið til verðlauna.
Vertu með. Allir velkomnir.
Reglur í Golf18 Open vetrarmótaröðinni í Veggsport.
1. grein Leikfyrirkomulag Leika skal þrjár umferðir með höggleiksfyrirkomulagi með forgjöf. Leikmenn fá stig eftir sætum. Árangur tveggja best spiluðu umferða telja til sigurs, það er flest stig úr tveimur bestu umferðunum. Leika skal velli í eftirfarandi röð: Janúar: St. Andrews Old Corse. Febrúar: Pebble Beach Mars: Druids Glen.
Bóka skal rástíma í síma 577 5555. Rástímar eru á hvaða tíma sem er meðan opið er og golfhermirinn er laus. Þrír eða fjórir leikmenn mynda ráshóp og skal ljúka leik á innan við 2,5 klst.miðað við þrjá leikmenn og 3,5 miðað við fjóra leikmenn.
2. grein Ágreiningur Komi upp ágreiningur um reglur, skor eða annað skulu leikmenn greina skriflega frá atvikum og senda til golf18@golf18.is og fá úrskurð dómara. Úrskurður dómara er endanlegur.
3. grein Forgjöf Hámarksforgjöf karla er 18 og 24 hjá konum. Vallarforgjöf leikmanna skal jafna frá grunnforgjöf þannig að frá heilli tölu til ,4 skal lækka í heilu töluna fyrir neðan og hækka frá ,5 til ,9 í heilu töluna fyrir ofan. (t.d. forgjöf 10,0, 10,1, 10,2, 10,3 og 10,4 verður vallarforgjöf 10 og 10,5, 10,6, 10,7, 10,8 og 10,9 verður vallarforgjöf 11).
Leikmenn sem ekki hafa löglega EGA forgjöf geta ekki unnið til verðlauna á mótinu. Gefi leikmaður upp ranga forgjöf dæmist hann sjálfkrafa úr keppni.
4. grein Framkoma Leikmenn skulu leytast við að trufla ekki leik hjá andstæðingi sínum á neinn hátt. Framkoma leikmanna skal vera tilhlýðileg að öllu leyti. Brot geta varðað frávísun.
5. grein Svona leikum við Leitast skal við að 3 eða 4 leikmenn leiki saman í ráshóp. Leikmenn skulu skiptast á skorkortum og skrá skor meðspilara ásamt eigin skori, yfirfara og skrifa undir eins og alltaf áður. Stimpla skal inn upphafsstafi hvers leikmanns í golfherminn áður en leikur hefst. Skila skal strimli úr prentara golfhermis, ásamt skorkortum þriggja leikmanna saman og skal nota bréfaklemmu, eða annað, þannig að hægt er að fara yfir hvern ráshóp fyrir sig. Óheimilt er að nota "Mulligan" valmöguleikann í herminum í mótinu og skal golfhermirinn vera stilltur á "Mulligan OFF" er leikið er.
Er allir leikmenn eru komnir á flöt er púttað í holu frá uppgefnum bókstaf. Hver kylfingur fær eina tilraun til að hitta í holuna frá þeim stað. Hitti hann í holu er skráð að sjálfsögðu eitt pútt í herminn, en hitti leikmaður ekki skal skrá 2 pútt og næsti síðan pútta frá sínum uppgefna stað.
Komi það til að hermirinn komi með einhverjar óeðlilegar lengdir miðað við það sem leikmaður taldi sig slá, má ekki reyna að laga það á neinn hátt. Þetta er tölvuleikur og ef slíkt hendir þá er bara að reyna að vinna höggið tilbaka seinna á hringnum.
6. grein Stigagjöf Stigagjöf í mótinu er sú sama og á Íslensku mótaröðinni og ABC mótaröðinni, þ.e. að 60 efstu í hverri umferð skipta með sér 15.000 stigum.
7. grein Verðlaun Veitt verða verðlaun fyrir þrjú stigahæstu sætin í karlaflokki og þrjú stigahæstu sætin í kvennaflokki, þar sem tvær bestu umferðirnar telja.
Engin verðlaun verða veitt fyrir hverja umferð fyrir sig.
Verðlaun í karlaflokki verða 500 krónur af hverju keppnisgjaldi karla úr öllum umferðum. Verðlaun í kvennaflokki verða 500 krónur af hverju keppnisgjaldi kvenna úr öllum umferðum.
Verðlaun verða veitt þremur stigahæstu kylfingunum eftir þrjár umferðir, þar sem tvær bestu telja og skiptast þannig:
|
Vafraðu um |